Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl og Skákfélagið Goðinn standa saman að opnu alþjóðlegu skákmóti dagana 19-22 nóvember 2026 sem fram fer í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Mótið er sett upp á sama hátt og 20 ára afmælismót Goðans sem fram fór í mars árið 2025 sem þóttist heppnast vel og því er nú leikurinn endurtekinn. Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl er aðal styrktaraðili mótsins og heitir því mótið eftir því. Skráning í mótið var opnuð í dag, 1. mars.
Nánari upplýsingar um mótið.
6 umferða opið alþjóðlegt skákmót, teflt á fjórum dögum, í einum opnum flokki. ATH. Ef fleiri en 64 skákmenn skrá sig í mótið verður því skipt skipt í tvo stigaflokka, 2000+ elo og -2000 elo. Miðað verður við stigalista FIDE 1. nóvember 2026. Titil skákmenn með 1900-1999 elo geta þó valið hvorn flokkinn sem er.
Tímamörk
90 mínútur fyrir alla skákina með 30 sek viðbótartíma fyrir hvern leik frá og með fyrsta leik. Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.
Dagskrá.
1 Umferð 19.11.2026 kl 19:00
2 Umferð 20.11.2026 kl 10:00
3 Umferð 20.11.2026 kl 16:00
4 Umferð 21.11.2026 kl 10:00
5 Umferð 21.11.2026 kl 16:00
6 Umferð 22.11.2026 kl 10:00
Oddastig (tiebreaks): 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart.
Yfirsetu reglur. (bye rules) Skákmönnum verður heimilt að taka tvisvar sinnum hálfs vinnings yfirsetu (bye) í umferðum 1-5, að því tilskildu að þeir gefi nægan fyrirvara. Með nægum fyrirvara telst hafa verið gefinn áður en öllum skákum er lokið í umferðinni á undan fyrirhugaðri yfirsetu umferð.
Beinar útsendingar
Allir skákir í mótinu verða sendar út í beinni útsendingu á lichess.org (30 borð)
Verðlaun
1 sæti 150.000 kr
2 sæti 100.000 kr
3 sæti 50.000 kr
Verðlaunum verðu skipt verði keppendur jafnir að vinningum
Topp 65+ 25.000 kr (+/- 170 €)
Topp U-18 ára 25.000 kr
Topp U-1800 elo 25.000 kr
Topp stiglaus 25.000 kr
Heildarverðlaun: 400.000 kr ( +/- 2790 €)
Ef sérstakur U-2000 elo flokkur verður eru verðlaun þar fyrir 1. sætið 50.000 kr
Þátttökugjöld
kr. 10.000
kr. 7.000 fyrir 18 ára og yngri og stiglausa.
Mótsstaður er Félagsheimilið Skjólbrekka í Mývatnssveit
Félagsheimilið Skjólbrekka stendur við bakka Mývatns og er rétt við hliðina á Sel-Hóteli sem er staðsett um 700 metra í burtu. Það er um 60 mínútna akstur frá Akureyri í Skjólbrekku. Það er 6 klukkustunda akstur frá Reykjavík í Skjólbrekku.
Gistimöguleikar.
Skipuleggjendur hafa samið við Sel Hotel Mývatn um að tryggja nægt framboð af gistingu fyrir keppendur. Sérstakur bókunarkóði hefur verið úbúinn fyrir keppendur til að bóka herbergi á Sel Hótel í þrjár nætur, sjá hér: “myvatnchess”
Aðra gistimöguleika í Mývatnssveit er hægt að skoða á visitmyvatn.is
Bóka gistingu á Sel Hótel Mývatn (slá svo inn kóðann myvatnchess í dálkinn Promocode)
Skrá sig í mótið (Register for the tournament)
Greiðslutengill, Fullt gjald 10.000 ISK
Greiðslutengill fyrir 18 ára og yngri. 7000 ISK.












